|
Humarhúsið, Amtmannsstíg 1, hefur verið starfrækt síðan 1995.
Á þeim tíma hefur Humarhúsið skapað sér orð sem einn vinsælasti veitingastaður landsins. Húsið er í hjarta höfuðborgarinnar og þykir staðurinn þægilegur og rómantískur. Húsið var byggt árið 1838 og hefur því verið haldið í upphaflegu útliti sem gefur veitingastaðnum mjög sterkan svip.
Eins og nafnið gefur til kynna, eru humarréttir aðalsmerki veitinga-hússins. Þrátt fyrir það er matseðill Humarhússins mjög fjölbreyttur og er hægt að velja á milli fjölda sjávar-, grænmetis-, og kjötrétta.
Vínseðill Humarhússins er einnig mjög fjölbreyttur og þar má finna vín frá hinum ýmsu vínhéruðum heimsins.
|